Krónan styrkist gagnvart evru
Gengi krónunnar heldur áfram að styrkjast gagnvart evru og kostaði evran 157,5 krónur á innlendum millibankamarkaði nú á 12. tímanum. Fram kemur í Morgunkorni Greiningar Íslandsbanka, að um áramótin hafi gengi evru hækkað í 179,9 krónur og hafi krónan því styrkst um 14,1% gagnvart evru frá þeim tíma.
Íslandsbanki segir, að krónan hafi í raun ekki verið jafn sterk gagnvart evru síðan í mars á síðasta ári. Krónan hafi einnig verið að sækja í sig veðrið gagnvart sterlingspundi en gengi þess er nú rúmar 188 en var rúmar 202 krónur um áramótin.
Íslandsbanki segir líklegt, að styrking krónunnar eigi rætur að rekja til aukins gjaldeyrisinnflæðis vegna afgangs af vöru- og þjónustuviðskiptum og ólíklegt að inngrip Seðlabankans skýri styrkinguna nú enda hafi bankinn haldið sig fjarri gjaldeyrismarkaði allt frá því í byrjun nóvember á síðasta ári.



















