Viðskipti
| mbl
| 1.6.2010
| 10:56
Steinþór tekur við í Landsbankanum
Ásmundur Stefánsson lætur af störfum sem bankastjóri Landsbankans (NBI hf.) frá og með deginum í dag. Við starfinu tekur Steinþór Pálsson.
Ásmundur hefur gengt stöðu bankastjóra frá 1. mars á síðasta ári, en hann var áður formaður bankaráðs frá nóvember 2008. Hann kom til liðs við Landsbankann eftir að hafa sinnt samræmingarhlutverki fyrir hönd ríkisstjórnar Geirs H. Haarde strax eftir hrun íslensku bankanna.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















