Viðskipti
| mbl
| 1.6.2010
| 10:06
Yfir 10% atvinnuleysi á evru-svæðinu
Ostrubændur sýna óánægju sína með stöðu atvinnugreinarinnar með því að henda ostrum í nágrenni Eiffel turnsins í miðborg Parísar Reuters
Atvinnuleysi mældist 10,1% að meðaltali í þeim sextán ríkjum sem mynda Myntbandalag Evrópu í apríl. Er þetta mesta atvinnuleysi á svæðinu frá upphafi en þetta þýðir að um sextán milljónir íbúa evru-svæðisins eru án atvinnu.
Í ríkjum ESB eru 23,3 milljónir án atvinnu, 2,4 milljónum fleiri en í apríl í fyrra. Einungis Þýskaland getur státað að minna atvinnuleysi í ár en í fyrra.
Atvinnuleysið er minnst í Hollandi eða 4,1% en mest í Lettlandi eða 22,5%.
Á Spáni eru 19,7% án atvinnu og ef horft er til ungs fólks þá mælist atvinnuleysið rúm 40%.
|
|
Nánari upplýsingar um atvinnuleysi í Evrópu |
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















