210 samningum þinglýst á höfuðborgarsvæðinu
Þegar maí 2010 er borinn saman við apríl 2010 fjölgar kaupsamningum um 7,7% og velta eykst um 8,7%. Í apríl 2010 var þinglýst 195 kaupsamningum, velta nam 5,3 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 27,3 milljónir króna.
Þegar maí 2010 er borinn saman við maí 2009 fjölgar kaupsamningum um 23,5% og velta minnkar um 2,2%. Í maí 2009 var þinglýst 170 kaupsamningum, velta nam 5,9 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 34,8 milljónir króna.
Makaskiptasamningar voru 49 í maí 2010 eða 25,5% af öllum samningum. Í apríl 2010 voru makaskiptasamningar 36 eða 19,9% af öllum samningum. Í maí 2009 voru makaskiptasamningar 79 eða 48,8% af öllum samningum. Makaskiptasamningur er þegar hluti kaupverðs er greitt með annarri fasteign. Upplýsingar um makaskiptasamninga eiga eingöngu við um íbúðarhúsnæði.
Vakin er athygli á að meðalupphæð kaupsamnings er ekki hægt að túlka sem meðalverð eigna og þar með sem vísbendingu um verðþróun. Þetta er vegna þess að hver kaupsamningur getur verið um fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru misstórar, misgamlar o.s.frv.



















