380 milljarðar falla á 340 fyrirtæki
Útflutningsfyrirtækin skulduðu um 870 milljarða um mitt síðasta ár Reuters
Meirihluti fyrirtækja sem voru orðin gjaldþrota í árslok 2009 var einungis með lán í krónum eða um 440 fyrirtæki. Hins vegar voru 96% heildareftirstöðva gjaldþrota fyrirtækja til fyrirtækja sem tóku að hluta til eða eingöngu gengisbundin lán. Þetta voru u.þ.b. 380 milljarða. sem falla á 340 fyrirtæki. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Seðlabanka Íslands.
U.þ.b. 60% heildareftirstöðva útlána gjaldþrota fyrirtækja eru gengisbundin lán og þriðjungur óverðtryggður. Hlutföllin eru svipuð hjá fyrirtækjum í greiðslustöðvun, nauðasamningsumleitunum eða þar sem farið hefur fram árangurslaust fjárnám. Rúmlega 60% heildarútlána gjaldþrota fyrirtækja eru útlán til eignarhaldsfélaga en þau eru einungis 5% gjaldþrota fyrirtækja.
Sömu sögu er að segja um fyrirtæki sem eru í greiðslustöðvun, hafa leitað eftir nauðasamningum eða þar sem gert hefur verið árangurslaust fjárnám. U.þ.b. helmingur af eftirstöðvum slíkra lána eru lán til eignarhaldsfélaga og um fjórðungur lán til þjónustufyrirtækja.
70 útflutningsfyrirtæki í greiðslustöðvun
Gjaldþrot útflutningsfyrirtækja eru fátíð, eða einungis 26 fyrirtæki, og áttu þau útistandandi lán að fjárhæð 12 milljarða króna í lok júní 2009. Hér er eingöngu um að ræða fyrirtæki sem flytja út vörur.
Hins vegar eru um 70 útflutningsfyrirtæki í greiðslustöðvun, hafa leitað eftir nauðasamningum eða að gert hefur verið árangurslaust fjárnám. Námu eftirstöðvar þessara 70 útflutningsfyrirtækja 58 milljörðum króna.
„ Skuldsetning útflutningsgeirans var afar mikil á árunum fyrir hrun bankakerfisins og var meirihluti útlána þess í erlendum gjaldmiðlum. Útistandandi lán íslenskra lánastofnana til útflutningsfyrirtækja námu um 870 ma.kr. í lok júní árið 2009 sem er um fimmtungur af heildarútlánum til fyrirtækja.
Hins vegar eru útflutningsfyrirtækin um 5% af heildarfjölda skuldsettra fyrirtækja. Stærstur hluti útlána til útflutningsfyrirtækja var til fyrirtækja í sjávarútvegi sem nam tæplega 40% af heildareftirstöðvum útlána til útflutningsfyrirtækja," segir í Fjármálastöðugleika nýs rits Seðlabanka Íslands.
Yfir 40% lána voru til stórfyrirtækja í útflutningi
Tæplega 18% heildarútlána voru til fyrirtækja í verslun og rúmlega 16% til fyrirtækja í iðnaði. Yfir 40% útlána voru til stórfyrirtækja í útflutningsgeiranum, þ.e. fyrirtækja með fleiri en 250 starfsmenn.



















