Viðskipti
| mbl
| 2.6.2010
| 10:28
Gengi evrunnar réttir úr kútnum
Gengi evrunnar hefur hækkað í dag. Reuters
Gengi evrunnar hækkaði nokkuð í dag eftir að nokkrir af stærstu seðlabönkum heimsins tilkynntu að þeir hygðust ekki að hætta að fjárfesta í gjaldmiðlinum. Evran hefur lækkað meira en 14% gagnvart dollar á þessu ári vegna áhyggja af skuldavalda Grikklands og mögulegri útbreiðslu hans. Óttast var að veik staða evrunnar leiddi til þess að seðlabankar heimsins myndu losa um eign sína í evrum.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















