48 milljarðar ekki forgangskröfur
Hæstiréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um að 48,5 milljarða króna kröfur Landsbanka Íslands í bú Straums-Burðaráss fjárfestingarbanka, séu ekki forgangskröfur.
Landsbankinn krafðist þess að kröfurnar yrðu skilgreindar sem forgangskröfur. Landsbankinn hélt því fram að um hefði verið að ræða svonefnd peningamarkaðsinnlán, sem ætluð hefðu verið til ávöxtunar fjár eins og hver önnur innlán.
Straumur taldi á hinn bóginn, að um hefði verið að ræða lán til sín frá Landsbankanum sem yrðu í öllum tilvikum rakin til lánasamninga, sem áður hefðu verið gerðir milli bankanna. Í samræmi við það hefði kröfum Landsbankans í bú Straums verið skipað í flokk krafna, sem ekki teldust forgangskröfur.
Héraðsdómur hafði áður komist að þeirri niðurstöðu, að Landsbankinn hefði ekki sannað að hann hefði lagt féð inn á innlánsreikning hjá Straumi til ávöxtunar heldur hefði verið um að ræða skammtímalán Landsbankans til Straums.
Hæstiréttur komst hins vegar að þeirri niðurstöðu, að þar sem ágreiningslaust væri að kröfur Landsbankans nytu ekki tryggingaverndar samkvæmt lögum um innlánstryggingar gætu kröfurnar ekki notið þeirrar rétthæðar við slit Straums, sem Landsbankinn krefðist. Því þyrfti ekki að leysa sérstaklega úr því hvort þær væru til komnar sem innlán eða lánveiting.



















