Viðskipti
| mbl
| 3.6.2010
| 16:34
Arion banki uppfyllir kröfur FME
Arion banki vill árétta að bankinn hafi uppfyllt kröfur Fjármálaeftirlitsins um stórar áhættuskuldbindingar frá og með 8. janúar, ef undan sé skilin krafa á gamla Kaupþing.
Tilkynningin er eftirfarandi:
„Vegna fréttar um áhættuskuldbindingar vill Arion banki árétta að samkvæmt ársreikningi 2009 hefur bankinn uppfyllt kröfur Fjármálaeftirlitsins um stórar áhættuskuldbindingar frá og með 8. Janúar, ef undan er skilin krafa á gamla Kaupþing. Krafan á gamla Kaupþing tengist því að verðmæti eigna sem fluttust til Arion banka voru lægri en verðmæti fluttra innlánsskuldbindinga, en sá flutningur var í samræmi við fyrirmæli FME.“
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















