Viðskipti
| mbl
| 4.6.2010
| 9:01
| Uppfært
9:26
17 milljarða afgangur
Álver Alcoa Fjarðaáls í Reyðarfirði. Útflutningur áls vegur þungt í vöruskiptajöfnuði Íslands. Mynd/Emil Þór
Samkvæmt bráðabirgðatölum fyrir maí var útflutningur fob 52,4 milljarðar króna og innflutningur 35,6 milljarðar króna.
Vöruskiptin í maí, reiknuð á fob verðmæti, voru því hagstæð um 16,8 milljarða króna samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofunnar en á sama tíma í fyrra var vöruskiptajöfnuður í maí hagstæður um rúma 7,4 milljarða króna.
Það sem af er árinu er 54,4 milljarða króna afgangur af vöruskiptum við útlönd. Fyrstu fimm mánuði síðasta árs var afgangur á vöruskiptum 32,6 milljarðar króna.
Afgangur hefur verið á vöruskiptum í hverjum mánuði allt frá september 2008.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















