Fasteignaverð lækkar í Bretlandi
Verð á fasteignum lækkaði um 0,4% í Bretlandi í maí samanborið við maímánuð í fyrra. Í apríl nam lækkunin 0,1%, samkvæmt upplýsingum frá Halifax fasteignafyrirtækinu. Að sögn Martin Ellis, hagfræðings hjá Halifax er útlit fyrir að litlar sem engar breytingar verði á fasteignaverði í Bretlandi í ár.
Á Íslandi hefur raunverð húsnæðis lækkað um tæplega 35% frá
hápunkti þess í október 2007. Raunverð íbúða er nú lægra en það var áður
en viðskiptabankarnir hófu að veita lán til húsnæðiskaupa haustið 2004
ef tekið er tillit til þróunar vísitölu neysluverðs. Þetta kemur fram í
Peningamálum Seðlabanka Íslands sem komu út í maí. Telur Seðlabankinn líklegt að fasteignaverð eigi eftir að lækka enn frekar á Íslandi.
Velta á fasteignamarkaði mun líklega ekki aukast að ráði fyrr en heimilin öðlast meiri vissu um fjárhagslega stöðu sína og aðstæður á vinnumarkaði og framtíðartekjuhorfur batna. Úrræði stjórnvalda og aðgerðir bankanna til að koma til móts við heimilin hafa að einhverju leyti dregið úr þeirri óvissu sem ríkt hefur. Þetta kemur fram í spá Seðlabanka Íslands.
Halifax, sem er hluti bankasamstæðunnar Lloyds Banking Group (LBG), sem er að hluta í ríkiseigu, segir að miðgildi verðs á fasteign í Bretlandi sé 167.570 pund, 31,6 milljónir króna.



















