Viðskipti
| mbl
| 4.6.2010
| 9:04
Kortavelta eykst
Kreditkortavelta heimila jókst um 8,8% í fyrstu fjóra mánuði ársins miðað við janúar–apríl í fyrra. Debetkortavelta jókst um 6% á sama tíma. Samtals jókst greiðslukortavelta heimila í janúar–apríl 2010 um 7,4% að því er kemur fram í hagvísum Hagstofunnar.
Greiðslukortavelta Íslendinga erlendis jókst um 21,7% en erlend greiðslukortavelta hérlendis dróst saman um 11,1% í janúar– apríl 2010 miðað við sömu mánuði 2009.
Vísitala neysluverðs án húsnæðis hækkaði um 11,3% miðað við meðaltal vísitölunnar í janúar–apríl sem veldur 3,5% raunlækkun á innlendri greiðslukortaveltu.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















