Viðskipti
| AFP
| 8.6.2010
| 15:36
Lítilsháttar hækkun á heimsmarkaðsverði
Heimsmarkaðsverð á olíu hækkaði lítillega í dag og fást nú 72 Bandaríkjadalir fyrir tunnuna. Er það verð ásættanlegt að mati olíumálaráðherra Kúveit, Sheikh Ahmad Abdullah al-Sabah, og sér hann enga ástæðu til þess að olíumálaráðherrar OPEC-ríkjanna komi saman og ræði um að minnka framleiðsluna.
Á Nymex markaðnum í New York hefur hráolía hækkað um 25 sent í dag og er 71,69 dalir tunnan. Í Lundúnum lækkaði Brent Norðursjávarolía um 19 sent og er 71,93 dalir tunnan.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















