Segir Iceland verðmætustu eign Íslands

Iceland Foods stækka

Iceland Foods

Forstjóri bresku verslunarkeðjunnar Iceland Food, Malcolm Walker, vill ekki tjá sig um orðróm sem er um að hann hafi hug á að eignast keðjuna sem nú er að mestu í eigu íslenska ríkisins eftir að Baugur fór í gjaldþrot.  Er þessi orðrómur ekki nýr af nálinni en hann blossaði upp um svipað leyti og íslensku bankarnir féllu haustið 2008.

Walker stofnaði keðjuna á sínum tíma og þegar Baugur Group, Fons og fleiri fjárfestar eignuðust keðjuna á sínum tíma fengu þeir Walker til þess að stýra rekstrinum. Walker á einnig hlut í keðjunni. Hann segist telja að matvörukeðjan sé verðmætasta eign Íslands. 

„Þeir eiga í vandræðum með að ákveða hvað þeir eiga að gera við okkur," segir Walker í viðtali við This is Money vefinn.

Í nóvember í fyrra sagði Jón Ásgeir Jóhannesson að Walker væri meðal þeirra fjárfesta sem vildu kaupa Haga með honum og föður hans, Jóhannesi Jónssyni.

Walker sagði á þeim tíma í samtali við blaðamann Morgunblaðsins að  Jón Ásgeir hafi komið að máli við sig og spurt hvort hann vildi hjálpa honum og kaupa hlut í Högum. Hann hafi verið jákvæður en ekki tekið neina ákvörðun enn.

Í fréttaskýringu sem birt var í Morgunblaðinu í febrúar kom fram að í apríl 2007 seldi Icebox Holding öll hlutabréf Iceland til Iceland Food Stores Limited á 560 milljónir punda. Landsbankinn lánaði fyrir helmingi kaupverðs en bæði félög voru í eigu sömu aðila.

Icebox   Holding, sem var eignarhaldsfélag í eigu Baugs Group, Fons, Milestone og stjórnenda Iceland utan um Iceland-verslanakeðjuna, hagnaðist um 280 milljónir punda þegar verslanakeðjan Iceland var seld til annars félags í þeirra eigu. Félagið Iceland Food Stores Limited, sem var einnig í eigu hluthafa Icebox Holding, keypti félagið á 560 milljónir punda í apríl 2007, en Landsbankinn fjármagnaði kaupin að hálfu. Rekstur Iceland var skuldlaus á þessum tíma, en eftir að Iceland Food Stores Limited keypti þyngdist skuldabyrðin umtalsvert, eða um 280 milljónir punda.

Greint var frá því á forsíðu viðskiptahluta Fréttablaðsins þann 11. apríl 2007 að eigendur Iceland hefðu fengið 39 milljarða króna greidda í arð. Ljóst er að Landsbankinn fjármagnaði þá arðgreiðslu að fullu. Á þeim tíma sem gerningurinn átti sér stað átti Baugur 31% í Iceland og fékk 12 milljarða í sinn hlut, Fons átti 25% og fékk 11,3 milljarða, Milestone átti 10% og fékk 3,9 milljarða. Loks áttu Malcolm Walker og aðrir stjórnendur um 20% og fengu 7,8 milljarða króna. Í kjölfar færslunnar á Iceland-rekstrinum til Iceland Food Stores Limited minnkaði Walker lítillega við sig í félaginu, en aðrir stjórnendur auk Fons juku sinn hlut á móti.

Rekstur Iceland gekk afar vel á þessum tíma, en félagið hafði greitt niður allar skuldir og safnað 100 milljarða eigin fé á þegar salan frá Icebox fór fram.

 Hér er hægt að lesa meira um málið 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Viðskipti »

Í Flatey á Mýrum í Austur-Skaftafellssýslu er rekið stærsta kúabú landsins. Búið var auglýst til ...

Tekur þrjú ár að selja 45 jarðir

18:27 Landsbankinn reiknar með að það taki um þrjú ár að ljúka sölu á öllum jörðum í eigu jarðafélagsins Lífsvals, en félagið á um 45 jarðir. Bankinn hefur auglýst 20 þeirra til sölu um helgina, m.a. stærsta kúabú landsins. Meira »
Verslun Moss Bros í Oxford Street.

29% hlutur í Moss Bros seldur

16:19 Tæplega þriðjugur hlutafjár í karlmannafataversluninni Moss Bros hefur skipt um hendur, en fyrirtækið var um tíma í eigu Baugs. Meira »

Býr sig undir hugsanlegt hrun evrunnar

15:50 Englandsbanki hefur hafið undirbúning fyrir það ef til þess kemur að evrusvæðið liðist í sundur að meira eða minna leyti. Meðal þeirra ráða sem bankinn hyggst grípa til ef á þarf að halda er að lækka vexti og frekari magnslökun. Meira »

58 skjölum um atvinnuhúsnæði þinglýst

10:53 Í apríl síðastliðnum var 58 skjölum (kaupsamningum og afsölum) um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu þinglýst og 48 utan þess. Heildarfasteignamat seldra eigna á höfuðborgarsvæðinu var 9.056 milljónir króna en 631 milljón króna utan þess. Af þessum samningum voru 16 um verslunar- og skrifstofuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

9,8% samdráttur í vörusölu á Spáni

Fólk mótmælir niðurskurði á Spáni.
10:07 Vörusala á Spáni dróst saman um 9,8% í apríl, borið saman við sama mánuð í fyrra. Samdrátturinn er mun meiri en reiknað hafði verið með. Þetta er 22. mánuðurinn í röð þar sem vörusala dregst saman á Spáni. Meira »

Hækkun á mörkuðum í Asíu

Hækkun varð í kauphöllinni í Tókýó í Japan dag.
08:28 Hækkun varð á mörkuðum í Asíu annan daginn í röð. Er hækkunin m.a. rakin til aukinnar bjartsýni um að Grikklandi haldi áfram evrusamstarfinu. Meira »

Væntingar vaxa lítillega í maí

Væntingar aukast með hækkandi sól.
11:16 Væntingar íslenskra neytenda jukust lítillega í maímánuði, en væntingavísitala Gallup, sem Capacent Gallup birti í morgun, hækkaði um tvö stig frá fyrri mánuði og mælist nú 73,3 stig. Meira »

Lægri verðbólga vegna lægra orkuverðs

Olíuverð hefur stuðlað að lægri verðbólgu.
10:29 Lægra orkuverð hefur stuðlað að lækkun verðbólgu í löndum OECD. Verðbólga í 34 aðildarlöndum OECD mældist 2,7% í mars. Verðbólga minnkaði mest í Bandaríkjunum, Kína og Bretlandi. Meira »

Innsýn í reksturinn

Fjölmiðlavaktin undir eigin vörumerki

Fréttamiðlun og samfélagsumræða hefur í auknum mæli flust yfir á netið.
09:54 Fjölmiðlavaktin, sem stofnuð var árið 1980, hefur undanfarin ár verið rekin undir merkjum Creditinfo en starfar nú á ný undir eigin vörumerki. Engar breytingar hafa þó orðið á eignarhaldi. Meira »

Yfirtekur rekstur sjóða rekstrarfélags Byrs

í gær Íslandssjóðir hf., dótturfyrirtæki Íslandsbanka, hefur yfirtekið rekstur verðbréfa- og fjárfestingarsjóða rekstrarfélags Byrs í framhaldi af sameiningu Íslandsbanka og Byrs. Meira »

Raunhæft að ríkið greiði sér brátt arð úr bönkunum

26.5. Þrátt fyrir að það megi teljast raunhæft að ríkið geti bráðlega greitt sér út arð úr bönkunum er hins vegar mikilvægt að þeir fjármunir verði nýttir annaðhvort til að greiða niður skuldir ríkisins eða til fjárfestinga í verkefnum með sambærilega arðsemiskröfu og Bankasýsla ríkisins gerir til þeirra banka sem ríkið á eignarhlut í. Meira »

Spænsk hlutabréf ekki lægri í níu ár

Mariano Rajoy, forsætisráðherra Spánar, hefur í dag reynt að róa fjárfesta.
í gær Hlutabréfavísitala á Spáni lækkaði um 2,17% í dag en hún hefur ekki verið lægri í níu ár. Ástæðan er ótti fjárfesta við afleiðingar hruns Bankia, fjórða stærsta banka Spánar. Meira »

Grikkir uppiskroppa með fé í júní

Lucas Papademos, fyrrverandi forsætisráðherra Grikklands.
27.5. Fyrrverandi forsætisráðherra Grikklands, Lucas Papademos, varar við því að ef Grikkir fái ekki frekari fjárhagsaðstoð frá Evrópusambandinu og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum verði þeir orðnir uppiskroppa með fjármuni í lok júní. Meira »

Tap af rekstri OR nam 4 milljörðum

25.5. Rekstrarhagnaður (EBIT) Orkuveitu Reykjavíkur varð 4,9 milljarðar króna á fyrsta ársfjórðungi 2012. Það er afkomubati fyrir fjármagnsliði og skatta um liðlega 42% frá sama tímabili 2011. Ytri þættir – þróun álverðs og gengi krónunnar – voru heildarafkomunni áfram óhagstæðir. Tap af rekstri OR á tímabilinu nam 3.998 milljónum kr. Meira »

Svipaðar fréttir

Mynt Fjárhæð Mynt Fjárhæð
  ISK   USD
  EUR   GBP
  CAD   DKK
  NOK   SEK
  CHF   JPY
Gengi gjaldmiðla

Sigurður Már Jónsson

mynd Ferðamennska til fjár
Fyrstu fjóra mánuði ársins fjölgaði erlendum ferðamönnum sem hingað koma um 20% sé miðað við síðasta ár. Það er staðfesting á þeim gríðarlega vexti Meira

Frosti Sigurjónsson

mynd Afnám hafta: Umræður á Alþingi
Afnám gjaldeyrishafta er afar mikilvægt úrlausnarefni stjórnvalda sem hefur verið furðu lítið rætt í Alþingi. Svo bar þó við að málið komst á dagskrá Meira

Már Wolfgang Mixa

mynd Vísitala fjármálalæsis á Íslandi fellur
Stofnun um fjármálalæsi og sálfræðisvið viðskiptadeildar Háskólans í Reykjavík birtir fimmtudaginn 3. maí rannsókn þar sem þekking, viðhorf og hegðun Meira

Bjarni Gylfason

mynd Iðjusemi jafngildir ekki aukinni framleiðni
Þrátt fyrir djúpa kreppu síðustu ár verður ekki litið framhjá þeirri mikilvægu staðreynd að hagþróun hér á landi undanfarna áratugi hefur að jafnaði Meira

finnur.is

Erlendar viðskiptafréttir