Viðskipti
| AFP
| 10.6.2010
| 15:15
Lánshæfiseinkunn Eistlands hækkuð
Alþjóðlega lánshæfismatsfyrirtækið Standard & Poor's hækkaði í dag lánshæfismat eistneska ríkisins í A/A-1 úr A-/A-2. bæði í innlendri og erlendri mynt. Eistland verður sautjánda aðildarríki Myntbandalags Evrópu um næstu áramót og skýrist hækkunin af fyrirhugaðri inngöngu.
Lánshæfiseinkunnir ríkissjóðs Íslands eru á svokölluðum athugunarlista með neikvæðum horfum hjá Standard & Poor's. Lánshæfiseinkunnir Íslands eru BBB-/A-3 í erlendri mynt og BBB+/A-2 í innlendri mynt.Í tilkynningu frá S&P segir að aðild að Myntbandalaginu muni bæta stöðu Eistlands á gjaldeyrismarkaði og auðvelda ríkinu aðgang að lánsfjármörkuðum Evrópu.
Segir S&P líkur á að landsframleiðslan aukist um 1% í ár eftir að hafa dregist saman um 14% á síðasta ári. Hrósar matsfyrirtækið stjórnvöldum í Eistlandi fyrir aðhaldsaðgerðir sem þau hafa gripið til og að þær séu að skila árangri.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















