Viðskipti
| mbl
| 10.6.2010
| 13:44
| Uppfært
14:28
Skorti upplýsingar um eigið fyrirtæki
Ari Edwald, forstjóri 365 miðla ehf. mbl.is/Sverrir
365 miðlar voru fyrr í vikunni dæmdir til að greiða 160 milljónir króna inn þrotabú Íslenskrar afþreyingar vegna afsláttar sem veittur var af 1.500 milljón króna kaupverði Rauðsólar, en það félag hefur nú runnið saman við 365 miðla.
Ari sagði að 200 milljónir króna hefðu runnið frá fjölmiðlahlutanum til móðurfyrirtækisins á tímabilinu 3. nóvember til 3. desember 2008. Um áramótin 2008/09 hafi 365 miðlar ehf. jafnframt lánað Íslenskri afþreyingu 40 milljónir króna. Ari sagði að afslátturinn sem Íslensk afþreying veitti Rauðsól hefði átt að vera hærri en 160 milljónir, meðal annars vegna þeirra fjármuna sem runnu til Íslenskrar afþreyingar frá 365 miðlum fram að gjaldþroti fyrrnefnda fyrirtækisins. Jafnframt hafi skort upplýsingar um stöðu 365 miðla, eins og áður sagði.
„Hann [innsk. Ari Edwald] sagðist ekki muna hvenær stefndi hafi fyrst gert afsláttarkröfu, en taldi það hafa verið í desember 2008 eða um áramótin. Þá kvaðst hann ekki heldur muna nákvæmlega hvenær samkomulagið komst á, en kvaðst telja það hafa verið í janúar-febrúar 2009. Menn hafi áttað sig á að verðið hafi verið of hátt. Þetta hafi verið heildarlausn á því máli," segir meðal annars í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















