Viðskipti
| mbl
| 14.6.2010
| 11:42
Endurskoðun hafin á fjármálum Grikklands
Alþjóðlegir endurskoðendur eru byrjaðir að fara yfir fjármál Grikklands til þess að fylgjast með því hvernig miðar í niðurskurði í ríkisfjármálum. Eru það endurskoðendur á vegum Evrópusambandsins og Alþjóða gjaldeyrissjóðsins sem nú fara ofan í saumana á fjármálum ríkissjóðs en það er hluti af samningi grískra stjórnvalda við ESB og AGS um neyðarlán til ríkisins.
Grikkir þurfa að skera verulega niður en fjárlagahallinn er 14% af vergri landsframleiðslu en ríkissjóði er gert að skera hann niður í 3% fyrir árið 2014.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















