Hrein eign lífeyrissjóðanna eykst lítið
Hrein eign lífeyrissjóðanna til greiðslu lífeyris nam 1.874 milljörðum króna í lok apríl síðastliðins og jókst um 16 milljarða króna í mánuðinum skv. tölum sem Seðlabankinn hefur birt. Það jafngildir um 1% aukningu frá fyrri mánuði.
Þetta er lítil aukning miðað við það sem sést hefur undanfarna mánuði, en hrein eign lífeyrissjóðanna hefur að meðaltali aukist um 21 milljarð króna hvern mánuð undanfarið hálft ár, að því er fram kemur í Morgunkorni Greiningar Íslandsbanka.
„Þrátt
fyrir þann mikla skell vegna lífeyrissjóðirnir urðu fyrir vegna
hlutabréfaeignar og eignar banka- og fyrirtækjaskuldabréfa í kjölfar
hrunsins eru sjóðirnir enn ótrúlega stórir í alþjóðlegu samhengi. Nam
hrein eign þeirra í marslok 125% af vergri landsframleiðslu síðasta árs
Erlendar
eignir sjóðanna drógust saman um 420 m. kr í aprílmánuði en eignir í
innlendum skuldabréfum og verðbréfasjóðum jukust um 7 ma.kr. Mest munar
þar um að eign lífeyrisjóðanna í innlendum íbúðabréfum jókst um 9 ma.kr.
Þar hefur einhver áhrif 0,55% hækkun vísitölu neysluverðs í marsmánuði.
Þá jukust eignir lífeyrissjóðanna í innlendum hlutabréfum og
hlutabréfasjóðum um 2,5 ma. kr.
Í lok apríl síðastliðins hafði
hrein eign lífeyrissjóðanna hækkað um 245 ma.kr. frá sama tíma fyrir
ári, sem jafngildir hækkun upp á 15% að nafnvirði. Sé tekið tillit til
verðbólgu nemur hækkunin 6,2%. Þar verður þó að hafa í huga að
iðgjaldagreiðslur inn í lífeyrissjóði eru til muna hærri en
lífeyrisgreiðslur og útflæði vegna innlausnar séreignarsparnaðar.
Raunávöxtun sjóðanna er því mun minni en framangreind tala gefur til
kynna," segir í Morgunkorni Íslandsbanka.



















