Viðskipti
| Morgunblaðið
| 15.6.2010
| 5:30
Erlend lán afskrifuð
Nánast allar erlendar skuldir fjarskipta- og upplýsingatæknifyrirtækisins Teymis hafa verið afskrifaðar.
Vaxtaberandi skuldir upp á 21 milljarð króna voru afskrifaðar á síðasta ári, en eftir standa skuldir upp á 14,6 milljarða sem eru nánast allar í íslenskum krónum. Í kjölfar gengisfalls krónunnar hækkuðu skuldir Teymis hratt, en í árslok 2008 var eigið fé fyrirtækisins neikvætt um á þriðja tug milljarða króna.
Samkvæmt ársreikningi fyrir árið 2009 tapaði félagið 2,5 milljörðum, en skattatap bætir afkomuna. Stjórnarformaður Teymis segir í Morgunblaðinu í dag, að reksturinn gangi vel og reiknar hann með hagnaði á árinu 2010.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















