Grikkland hrapar í ruslflokk
George Papaconstantinou, fjármálaráðherra Grikklands segir aðgerðir stjórnvalda sárar en nauðsynlegar Reuters
Helsta ástæða þess að matsfyrirtækið Moody's hefur sett lánshæfismat gríska ríkisins í ruslflokk með einkunnagjöfinni Ba1 er hættan á því að hagvöxtur verði ekki nægjanlegur í landinu á næstu árum og það leiði til þess að aðhaldsaðgerðir stjórnvalda dugi ekki til þess að koma böndum á skuldasöfnun ríkissjóðs.
Þetta kemur fram í fréttatilkynningu matsfyrirtækisins. Þar sem segir að neyðaraðstoð Evrópusambandsins og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins hafi veitt gríska ríkinu skjól frá fjármálamörkuðum um sinn. Aðstoðin gerir að verkum að grísk stjórnvöld þurfa ekki að endurfjármagna skuldir sínar á næstu þremur árum með hefðbundnum hætti og geta því dregið á neyðarlánin meðan að aðhaldsaðgerðunum er hrint í framkvæmd.
Hinsvegar segir í tilkynningu að umtalsverð óvissa ríkti um árangur aðhaldsaðgerðanna og áhrif þeirra á hagvaxtarhorfur á næstu árum. Moody's lækkaði lánshæfismat gríska ríkisins um fjóra flokka eða í Ba1 úr A3. Efnahagsspár gera ráð fyrir 4% samdrætti í gríska hagkerfinu og búast margir hagfræðingar að hann verði enn meiri þegar fram í sækir, meðal annars vegna minnkandi eftirspurnar hins opinbera vegna aðhaldsaðgerða.



















