Kortavelta eykst á ný
Þegar leiðrétt hefur verið fyrir þróun verðlags og gengis er ljóst að velta á kreditkortum jókst að raungildi um 6,4% í nýliðnum maí borið saman við sama mánuð í fyrra, samkvæmt Morgunkorni Greiningar Íslandsbanka.
Í mars og apríl dróst kreditkortaveltan saman að raungildi frá árinu áður og benda þessar tölur því til þess að neysla landsmanna hafi tekið við sér á nýjan leik eftir tímabundið bakslag. Eins og kunnugt er gefur raunbreyting kortaveltu mjög góða vísbendingu um þróun einkaneyslu, samkvæmt Morgunkorni.
Velta á debetkortum nam 31 milljarði króna. sem er aukning um 16,3% frá fyrri mánuði í krónum talið.
„Þegar við hinsvegar berum saman við tölur frá sama mánuði fyrra árs og leiðréttum fyrir verðlagsþróun þá kemur í ljós að debetkortaveltan hefur dregist saman um 7%, sem er þó helmingi minni samdráttur en í síðasta mánuði þegar veltan á debetkortum dróst saman um 14,7% á þennan kvarða," segir í Morgunkorni.



















