Viðskipti
| mbl
| 16.6.2010
| 11:58
Bílaleiga Akureyrar kaupir bíla
Bílaleiga Akureyrar hefur
samið við bílaumboðið Öskju um kaup á liðlega 30 nýjum Kia bifreiðum sem afhentar
verða á næstu vikum. Eins og fram hefur komið í sölutölum Bílgreinasambandsins
hefur sala á nýjum bílum tekið að glæðast undanfarið og má meðal annars rekja
það til þess að bílaleigurnar hafa verið að endurnýja flota sína fyrir sumarið, að því er segir í fréttatilkynningu.
Forsvarsmenn Bílaleigu Akureyrar eru bjartsýnir á ferðasumarið 2010 og segja að eftirspurn eftir bílaleigubílum sé nú aftur að færast í eðlilegt horf eftir talsverðan samdrátt í bókunum í apríl og maí vegna eldgossins í Eyjafjallajökli, samkvæmt því sem fram kemur í fréttatilkynningu.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















