Eignasafn SÍ á 73% í Sjóvá
Eignaumsýslufélag í eigu Seðlabanka Íslands, Eignasafn SÍ, á 73,03% hlut í Sjóvá, SAT eignarhaldsfélag, sem er dótturfélag Glitnis á 17,67% og Íslandsbanki á 9,3%. Þetta kemur fram í skriflegu svari Steingríms J. Sigfússonar, fjármálaráðherra við fyrirspurn Eyglóar Harðardóttur, Framsóknarflokki.
Forsaga málsins er sú að vorið 2009 óskaði skilanefnd Glitnis eftir því við helstu kröfuhafa á eignarhaldsfélög Sjóvár að staðið yrði sameiginlega að aðgerðum til að bjarga tryggingarhluta Sjóvár frá gjaldþroti.
Tryggingarhluti félagsins hafði áður verið í sölumeðferð þar sem vonir stóðu til að erlendir aðilar mundu koma að endurreisn félagsins en upp úr þeim viðræðum slitnaði.
Lendi tryggingafélag í gjaldþroti er fyrsti kostur sá
að annað eða önnur
tryggingafélög taki við tryggingarstarfseminni en í tilviki Sjóvár taldi
Fjármálaeftirlitið að
vegna stærðar Sjóvár og hárrar markaðshlutdeildar væri ekki æskilegt að
hin tryggingafélögin
tækju við tryggingarstarfsemi Sjóvár. Til að viðhalda
tryggingarstarfsemi Sjóvár þurfti að
leggja til eigið fé að andvirði 16 milljarðar kr, að því er segir í svari fjármálaráðherra.
Niðurstaðan varð sú að þrír stærstu hagsmunaaðilar að
áframhaldandi rekstri félagsins,
þ.e. Glitnir, Íslandsbanki og ríkissjóður sem kröfuhafi, lögðu félaginu
til aukið eigið fé.
Framlag ríkissjóðs var með þeim hætti að dótturfélagi Glitnis, SAT
eignarhaldsfélagi, voru
seldar skilgreindar veðkröfur. Umsamið kaupverð á þessum eignum var 11,6
milljarðar kr.
Með þessum samningi fékk ríkissjóður handveð í ríflega 73% hlut af
hlutabréfum í SA tryggingum hf. (Sjóvá).
Ákvæði sölusamnings er að skilanefnd Glitnis er heimilt
að greiða kaupverðið með því
að afhenda ríkinu hlutafé sitt í SA tryggingum hf. (Sjóvá) og skal það
teljast fullnaðargreiðsla, en greiðslu á að inna af hendi í síðasta lagi
18 mánuðum frá dagsetningu á samningi
um kröfukaup. Glitni er þó heimilt að selja hlutina fyrir gjalddaga enda
renni þá söluandvirði
þeirra óskipt til seljanda. Ef söluverðið er lægra en kaupverð kröfu
ríkissjóðs er Glitni óheimilt að selja hlutina nema að fengnu samþykki
seljanda.
Um áramótin 2009–2010 var umsýsla krafna sem voru í eigu
fjármálaráðuneytisins og
Seðlabanka Íslands sameinuð í eignaumsýslufélagi sem Seðlabanki Íslands
stofnaði, Eignasafni SÍ. Ákvörðunarvald og eftirlit með þessum
kröfueignum með veði í hlutafé Sjóvár er
því alfarið í höndum Eignasafns SÍ.
Þann 3. maí sl. var gert samkomulag milli SAT og
Eignasafns SÍ þess efnis að uppgjöri
á framangreindum sölusamningi yrði flýtt og gerði SAT upp við Eignasafn
SÍ með framsali
á 73,03% eignarhlut í Sjóvá.



















