Viðskipti
| AFP
| 18.6.2010
| 8:04
Santander gerir tilboð í útibú RBS
Spænski bankinn Santander hefur gert tilboð í 318 útibú breska bankans Royal Bank of Scotland í Bretlandi. Santander, sem er stærsti banki Spánar, tilkynnti um tilboðið til kauphallarinnar í Madrid en fjárhæð tilboðsins er ekki gefin upp.
RBS setti útibú bankans í sölu eftir að framkvæmdastjórn Evrópusambandsins úrskurðaði að bankinn yrði að selja útibúin í kjölfar þess að bresk stjórnvöld björguðu bankanum frá gjaldþroti.
Samkvæmt frétt BBC er ekki vitað til þess að neinn annar hafi gert tilboð í útibúin en áður höfðu verið nefndir til sögunnar fimm mögulegir kaupendur.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















