Viðskipti
| mbl
| 21.6.2010
| 9:08
Enn minnkar kaupmáttur launa
Launavísitala í maí 2010 er 370,1 stig og hækkaði um 0,2% frá fyrri mánuði. Síðastliðna tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 4,0%. Vísitala kaupmáttar launa í maí 2010 er 103,9 stig og lækkaði um 0,2% frá fyrri mánuði. Síðustu tólf mánuði hefur vísitala kaupmáttar launa lækkað um 3,3%.
Tólf mánuðina á undan lækkaði kaupmáttur launa um 6,8%, það er maí 2008 til maí 2009. Næstu tólf mánuði þar á undan lækkaði hann um 3,7%, það er frá maí 2007 til maí 2008.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















