Viðskipti
| mbl
| 22.6.2010
| 18:57
Gjaldeyrisforðinn aukinn um 100 milljarða
Ríkissjóður hefur ákveðið að leysa til sín skuldabréf í evrum með gjalddaga 2011 og 2012. Alls námu kaupin 160 milljónum evra af fyrra bréfinu og 32 milljónum evra af síðara bréfinu, að nafnvirði, alls 192 milljónir evra, 30,2 milljarða króna.
Jafnframt hefur verið ákveðið að draga á tvíhliða lán sem samið var um við Danmörku, Finnland, Noreg, Pólland og Svíþjóð í tengslum við efnahagsáætlun stjórnvalda. Heildarfjárhæðin nemur jafnvirði 639 milljóna evra, rúma 100 milljarða króna, og bætist sú fjárhæð við gjaldeyrisforða Seðlabanka Íslands.
Nánari upplýsingar veitir Már Guðmundsson seðlabankastjóri á kynningarfundi sem haldinn verður í Seðlabankanum í fyrramálið, að því er segir í tilkynningu frá Seðlabankanum
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















