Landsframleiðsla á mann vel yfir meðallagi
Landsframleiðsla á mann var hér á landi 20% yfir meðaltali ESB-ríkjanna í fyrra. Er þá búið að taka tilliti til mismunandi kaupmáttar landsframleiðslunnar í hverju landi fyrir sig, þ.e. landsframleiðsla ríkjanna er metin í sömu mynt. Þetta kemur fram í Morgunkorni Greiningar Íslandsbanka.
Ísland er þarna í sjöunda og áttunda sæti með Svíþjóð á lista yfir ríki innan evrópska efnahagssvæðisins, en í Svíþjóð er landsframleiðsla á mann einnig 20% yfir meðaltali ESB ríkjanna. Noregur er sér á báti með landsframleiðslu á mann sem er 77% yfir meðaltali ESB ríkjanna, en kemur það til m.a. af nýtingu þeirra á olíuauðlindum þeirra og væri lægra ef frá eru taldar tekjur þeirrar af þessum auðlindum sem að miklu leyti er haldið utan þeirra hagkerfis. Kemur þetta fram í tölum sem Hagstofa ESB birti 21. júní síðastliðinn.
„Þrátt fyrir fjármálakreppuna er ljóst að íslenska hagkerfið er enn meðal þeirra sem bjóða upp á hvað mesta efnahagslega velmegun á þennan mælikvarða.
Ísland hefur ekki verið eitt í því að takast á við fjármálakreppuna og hefur það áhrif á samanburðinn. Einnig hefur lækkun krónunnar gert það ódýrara að búa hér á landi í samanburði við önnur lönd. Þrátt fyrir aukið atvinnuleysi hér á landi er það fremur góð nýting á íslensku vinnuafli í samanburði við vinnuafl margra annarra Evrópuþjóða sem skýrir m.a. hversu ofarlega Ísland er í þessum samanburði.
Ef samanburðurinn væri gerður á landsframleiðslu á hverja vinnustund myndi Ísland koma verr út. Fjármálakreppan hefur mest áhrif haft á efnahagsreikning Íslendinga, þ.e.a.s. skulda og eignastöðu, sem landsframleiðslumælikvarðinn lýsir ekki.
Í þessum samanburði ESB ríkjanna sést að mörg lönd sambandsins eru illa stödd á þennan mælikvarða. Þannig er landsframleiðslan metin með ofangreindum hætti 41% af ESB meðaltalinu í Búlgaríu, 49% í Lettlandi og 53% í Litháen. Í Póllandi er hlutfallið 61% en þess má geta að Pólverjar hafa verið einn stærsti einstaki hópur innflytjenda hér á landi," segir í Morgunkorni Íslandsbanka.



















