Viðskipti
| AFP
| 24.6.2010
| 7:12
Nýr forsætisráðherra hefur áhrif á markaði
Hlutabréfavísitölur hækkuðu á flestum mörkuðum í Asíu í morgun og er talið að nýr forsætisráðherra Ástralíu hafi vakið vonir um að fyrirhuguð skattlagning á ofurhagnað námafyrirtækja verði að engu.
Í Sydney í Ástralíu hækkaði hlutabréfavísitalan um 0,62%.Strax og tilkynnt var um að Gillard tæki við embætti forsætisráðherra tilkynnti BHP Billiton námafyrirtækið að það myndi fara í auglýsingaherferð gegn fyrirhugaðri skattlagningu sem hefur farið fyrir brjóstið á námafyrirtækjum sem vinna með náttúruauðlindir og hagnast gríðarlega.
BPH hækkaði um 2%, Rio Tinto, móðurfélag álversins í Straumsvík, hækkaði um 2,4%,Fortescue um 3,6% og MacArthur Coal um 5%.
Í Tókýó hækkaði Nikkei lítillega sem og Hang Seng vísitalan í Hong Kong.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















