Landsvirkjun í A-flokk hjá Reitun
Reitun er nýstofnað fyrirtæki og er dótturfélag IFS ráðgjafar ehf. Reitun er ætlað að meta íslensk fyrirtæki sem gefa út skuldabréf á innlendum markaði.
Einkunn Landsvirkjunar er sú sama og íslenska ríkisins og segir m.a. í niðurstöðum matsins, „að miðað við núverandi aðstæður, er Landsvirkjun ekki síðri lántakandi en íslenska ríkið".
Að mati Landsvirkjunar hefur einkunnin ekki bein áhrif á útgefna skuldabréfaflokka fyrirtækisins hér á landi. Hún mun hins vegar tryggja enn frekar að Landsvirkjun fái áfram hagstæð kjör á innlendum skuldabréfamarkaði, samkvæmt tilkynningu frá Landsvirkjun.
Í apríl breytti alþjóðlega matsfyrirtækið Moody's Investor Service horfum Landsvirkjunar úr neikvæðum í stöðugar en lánshæfiseinkunn vegna erlendra skuldbindinga er Baa3. Lánshæfi á innlendum skuldbindingum er P-3.



















