Viðskipti
| AFP
| 28.6.2010
| 8:38
Reikningar Írana frystir
Seðlabanki Sameinuðu arabísku furstadæmanna hefur fyrirskipað að innistæður á 41 bankareikningi verði frystar þar sem reikningarnir falla undir nýlega samþykktar refsiaðgerðir Sameinuðu þjóðanna. Þetta kemur fram í fréttum dagblaðsins Emirates
Business í dag.
Fyrir viku síðan lokuðu yfirvöld í Dubai yfir fjörtíu fyrirtækjum, bæði alþjóðlegum og innlendum, sem brutu gegn refsiaðgerðum SÞ. Fjölmargir Íranar búa í Dubai. Mikil viðskiptatengsl hafa verið undanfarin ár milli ríkjanna og eru viðskiptin metin á um 10 milljarða Bandaríkjadala árlega.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















