Vöruskiptin hagstæð um 35,9 milljarða
Fyrstu fimm mánuðina 2010 voru fluttar út vörur fyrir 229,5 milljarða króna en inn fyrir 174,6 milljarða króna fob (189,7 milljarða króna cif). Afgangur var því á vöruskiptunum við útlönd, reiknað á fob verðmæti, sem nam 54,9 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau hagstæð um 35,9 milljarða á sama gengi. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 19 milljörðum króna hagstæðari en á sama tíma árið áður.
Vöruskiptin hagstæð um 16,6 milljarða í maí
Á vef Hagstofu Íslands kemur fram að í maímánuði voru fluttar út vörur fyrir 52,3 milljarða króna og inn fyrir 35,7 milljarða króna fob (39,1 milljarð króna cif). Vöruskiptin í maí, reiknuð á fob verðmæti, voru því hagstæð um rúma 16,6 milljarða króna. Í maí 2009 voru vöruskiptin hagstæð um 7,3 milljarða króna á sama gengi.
Verðmæti iðnaðarvara jókst um 44,2%
Fyrstu fimm mánuði ársins 2010 var verðmæti vöruútflutnings 12,2% meira á föstu gengi en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 38% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 5,1% meira en á sama tíma árið áður. Útfluttar iðnaðarvörur voru 57,6% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 44,2% meira en á sama tíma árið áður. Aukning varð í verðmæti útflutnings iðnaðarvara, aðallega áls, en einnig varð aukning í útflutningi sjávarafurða en samdráttur varð í útflutningi á skipum og flugvélum.
Innflutningur eykst á ný
Fyrstu fimm mánuði ársins 2010 var verðmæti vöruinnflutnings 5,9 milljörðum eða 3,5% meira á föstu gengi en á sama tíma árið áður. Aukning varð í innflutningi á hrá- og rekstrarvöru og fjárfestingarvöru en á móti kom samdráttur í innflutningi á flutningatækjum.



















