Viðskipti
| mbl
| 1.7.2010
| 8:22
Stýrivextir hækka í Svíþjóð
Stýrivextir Seðlabanka Svíþjóðar voru hækkaðir um 0,25 prósentur í morgun og eru eftir hækkun 0,5%. Höfðu stýrivextir bankans verið 0,25% í eitt ár og hafa aldrei verið lægri í sögu Seðlabanka Svíþjóðar. Er hækkunin nú í takt við væntingar en bankinn hækkaði einnig hagvaxtaspá sína fyrir árið í ár. Spáir Seðlabankinn því að hagvöxtur verði 3,8% í Svíþjóð í ár.
Segir í tilkynningu frá bankanum að efnahagur Svíþjóðar sé að rétta verulega úr kútnum eftir niðursveiflu. Nú þurfi að hækka stýrivexti bankans í átt að eðlilegum vöxtum í takt við hagvöxt svo koma megi í veg fyrir að verðbólga fari yfir verðbólgumarkmið bankans sem eru 2%.
Fyrri spá bankans hljóðaði upp á 2,2% vöxt en nú er spáð 3,8% hagvexti eins og áður sagði. Samkvæmt nýrri spá er gert ráð fyrir að verg landsframleiðsla muni aukast um 3,6% á næsta ári.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















