Viðskipti
| AFP
| 2.7.2010
| 16:05
Efnahagsmálin þokast í rétta átt
Obama reyndi að horfa á jákvæða hluti varðandi tölur Vinnumálastofnunar en samkvæmt þeim minnkaði atvinnuleysið milli mánaða en samt sem áður töpuðust 125 þúsund störf í júní.
„Hagkerfi okkar hefur skapað tæplega 600 þúsund ný störf í einkageiranum í ár," sagði Obama,
„Gerum engin mistök, við erum á réttri leið e við erum ekki að fara nægjanlega hratt fyrir marga Bandaríkjamenn. Við erum heldur ekki að fara nægjanlega hratt fyrir mig heldur," bætti Obama við.
Hann hét því að gera allt sem í hans valdi stendur til þess að skapa ný störf.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















