Aukin sala hjá House of Fraser
Salan hjá breska vöruhúsinu House of Fraser hefur aukist á milli ára en keðjan hefur aukið áherslu á eigin vörumerki, að því er kemur fram í tilkynningu. Sala í þeim verslunum HoF sem einnig voru starfandi fyrir ári síðan hefur aukist um 7,5% á öðrum ársfjórðungi. Á fyrsta ársfjórðungi var aukningin 10%.
Jón Ásgeir Jóhannesson sagði sig úr stjórn House of Fraser í maí í kjölfar þess að mál var höfðað gegn honum af slitastjórn Glitnis í New York. Jón Ásgeir hafði setið í stjórninni í umboði skilanefndar Landsbankans, eftir að Baugur fór í gjaldþrot.
House of Fraser var stofnað árið 1941 en Baugur, FL Group, HBOS og
kaupsýslumennirnir Tom
Hunter og Kevin Stanford keyptu House of Fraser árið 2006. Skilanefnd
Landsbankans yfirtók 33% hlut þegar Baugur var gjaldþrota, Don
McCarthy, stofnandi og forstjóri HoF, á 22% hlut, Hunter á 10% hlut og
Lloyds Banking Group eignaðist 5,5% hlut við yfirtöku á HBOS.
House of Fraser rekur 62 verslanir í Bretlandi og á Írlandi.
Rekstarhagnaður á árinu 2008 nam 300 þúsund pundum en tap eftir afskriftir, fjármagnskostnað og annan óreglulegan kostnað nam 87 milljónum punda. Fyrirtækið hefur ekki lagt fram ársreikning fyrir síðasta ár en tilkynnt að hagnaður hafi aukist um 20% í ár frá því í fyrra án nánari skýringa.



















