Gengi bréfa Cimber Sterling hrynur
Gengi hlutabréfa danska lággjaldaflugfélagsins Cimber Sterling hefur lækkað mikið í dönsku kauphöllinni í morgun eftir að félagið birti ársuppgjör sem sýndi að tap á síðasta ári nam 229 milljónum danskra króna eftir skatta, jafnvirði rúmlega 4,8 milljarða íslenskra króna. Er það fjórfalt meira tap en árið 2008.
Gengi bréfa Cimber lækkaði um 18% þegar kauphöllin í Kaupmannahöfn var opnuð en hækkaði síðan aftur og var nú um klukkan 8 um 11% lægra en þegar viðskiptum var hætt í gær.
Að sögn danskra fjölmiðla mun Cimber Sterling nú freista þess að fá lán frá danska ríkinu. Þá er búist við því að félagið fari í nýtt hlutafjárútboð.
Bréf félagsins voru skráð í dönsku kauphöllinni undir lok síðasta árs og þá var gengi bréfanna um 10 krónur danskar. Það er nú um 3 krónur en félagið sendi frá sér afkomuviðvörun skömmu eftir að bréfin voru skráð á markaði.
Flugfélagið er með höfuðstöðvar í Sønderborg syðst á Jótlandi. Félagið hét áður Cimber Air en keypti hluta af rekstri og flugvélar af þrotabúi lággjaldafélagsins Sterling á síðasta ári og breytti í kjölfarið nafninu í Cimber Sterling.



















