Viðskipti
| mbl
| 6.7.2010
| 18:10
Lítil hreyfing á skuldabréfamarkaði
Skuldabréfavísitala GAMMA hækkaði lítillega í viðskiptum dagsins í dag, eða um 0,07 prósent. Verðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði um 0,05 prósent en sá óverðtryggði um 0,10 prósent. Velta á skuldabréfamarkaði nam alls 2,7 milljörðum króna.
Það sem af er ári hefur skuldabréfavísitalan hækkað um 9,52 prósent. Þar af hefur verðtryggði hluti hennar hækkað um 7,92 prósent og sá óverðtryggði um 13,57 prósent.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















