Exista leitar nauðasamninga
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur að beiðni stjórnar Exista veitt félaginu heimild til að leita nauðasamninga við kröfuhafa sína. Samkvæmt frumvarpi að nauðasamningi eignast kröfuhafar Exista að fullu en félagið verður rekið áfram í breyttri mynd.
Hefur héraðsdómur skipað Magnús Guðlaugsson, hæstaréttarlögmann, sem umsjónarmann með nauðasamningsumleitunum félagsins.
Fram kemur í tilkynningu, að stjórn Exista, sem sé skipuð fulltrúum stærstu kröfuhafa félagsins, sé einhuga um að leita nauðasamninga. Ákvörðun stjórnarinnar byggi á ítarlegri greiningu á stöðu félagsins og hvernig hámarka megi endurheimtur kröfuhafa.
Nefndir bæði innlendra og erlendra kröfuhafa hafi ásamt félaginu unnið að málefnum Exista og sé framlagður nauðasamningur niðurstaða þeirrar vinnu. Með fjárhagslegri endurskipulagningu Exista sé gert ráð fyrir að félagið geti þjónustað og aukið verðmæti eigna sinna með hagsmuni kröfuhafa að leiðarljósi.
Þá kemur fram að nauðasamningsferlið muni ekki hafa áhrif á daglegan rekstur dótturfélaga Exista sem eru Vátryggingafélag Íslands hf., Líftryggingafélag Íslands, Lýsing hf. og Skipti hf.



















