Viðskipti
| mbl
| 7.7.2010
| 20:27
Hressileg hækkun vísitalna
Bandarísk verðbréf hækkuðu hressilega í verði í dag. Hækkunin er rakin til góðrar afkomu fjármálafyrirtækja. Þannig hækkaði Dow Jones vísitalan um 2,8% og fór yfir 10.000 stig. Vísitalan hækkaði nú annan daginn í röð eftir samfellda lækkun í sjö viðskiptadaga þar á undan.
Nasdaq vísitalan hækkaði um 3,13% og S&P 500 vísitalan einnig um 3,13%.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















