Viðskipti
| mbl
| 7.7.2010
| 9:01
Nærri 9 milljarða afgangur
Samkvæmt bráðabirgðatölum, sem Hagstofan hefur birt, var útflutningur í júní tæpir 48 milljarðar króna og innflutningur 39,3 milljarðar króna.
Vöruskiptin í júní, reiknuð á fob verðmæti, voru því hagstæð um 8,6 milljarða króna en á sama tíma í fyrra voru vöruskiptin í júní hagstæð um rúma 7,2 milljarða.
Afgangur hefur nú verið á vöruskiptum í nánast öllum mánuðum frá september 2008. Það sem af er árinu er afgangur af vöruskiptum um 62,5 milljarðar króna en á sama tímabili á síðasta ári var afgangurinn á vöruskiptum ársins orðinn 39,2 milljarðar króna.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















