Alþjóðleg tryggingafélög tapa
Tjón, sem alþjóðleg endurtryggingafélög þurfa að bæta, hefur aldrei verið jafn mikið og á fyrri hluta ársins og er það rakið til náttúruhamfara, aðallega jarðskjálftanna á Haítí, í Chile og Kína og eldgossins í Eyjafjallajökli.
Breska viðskiptablaðið Financial Times vísar í dag í tölur frá endurtryggingafélaginu Munich Re þar sem kemur fram að tjónabætur vegna náttúruhamfara hafi numið 70 milljörðum dala, jafnvirði 8800 milljörðum króna, á fyrri hluta ársins. Er það meira en allt árið í fyrra.
Mesta tjónið varð af völdum jarðskjálftans í Chile en talið er að tjón sem tryggingafélög þurftu að bæta hafi numið 8 milljörðum dala. Efnahagslegt tjón af völdum skjálftans er talið hafa numið 30 milljörðum dala.
Mannskæðustu náttúruhamfarirnar voru jarðskjálftinn á Haítí þar sem 223 þúsund manns létu lífið. Kostnaður tryggingafélaga var hins vegar lítill eða um 150 þúsund dalir vegna þess að líf og mannvirki voru almennt ekki tryggð.
Blaðið hefur eftir sérfræðingum, að þótt tjón sem endurtryggingafélög þurftu að bæta hafi verið óvenju mikið á fyrri hluta ársins sé þó ekki útlit fyrir að félögin þurfi að hækka iðgjöld.



















