Viðskipti
| Morgunblaðið
| 8.7.2010
| 5:30
| Uppfært
7:22
Sátt að nást um Actavis
Deutsche Bank og Björgólfur Thor Björgólfsson, eigandi Actavis, eru komnir á fremsta hlunn með að ná samkomulagi um skuldir lyfjarisans við bankann, að því er Reuters-fréttastofan greinir frá.
Herma heimildir fréttastofunnar að samið verði um að fella niður hluta skulda gegn því að bankinn fái hlutdeild í söluhagnaði Actavis verði það selt.
Björgólfur Thor fékk 4,7 milljarða evra að láni frá Deutsche Bank árið 2007 til að fjármagna kaup á Actavis en ekki kemur fram í fréttinni hversu stór hluti þeirrar upphæðar verður afskrifaður, né heldur er gefið upp hversu stóran skerf Deutsche Bank fær af væntanlegum söluhagnaði samheitalyfjarisans.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















