FL Group felldi ekki Glitni
Lárus Welding, fyrrverandi forstjóri Glitnis banka, segir í yfirlýsingu sem lögð hefur verið fyrir dómstól á Manhattan, að rangfærslur séu í málatilbúnaði slitastjórnar Glitnis, sem höfðaði 2 milljarða dala skaðabótamál gegn Lárusi og fleiri aðilum tengdum Glitni.
Lárus segir, að slitastjórnin dragi upp þá mynd, að FL Group hafi valdið því að Glitnir féll. Þetta sé ekki rétt. Glitnir og hinir tveir stóru bankarnir á Íslandi hafi fallið nánast á sama tíma árið 2008 vegna alþjóðlegrar lausafjárkreppu. FL Group, sem var stór hluthafi í Glitni, hafi fallið vegna þess að bankinn féll en ekki öfugt.
Þótt látið sé að því liggja í stefnunni, að FL Group hafi haft mikil áhrif á lánveitingar Glitnis vegna hlutafjáreignar sinnar, sé staðreyndin sú að FL Group fékk meira fé að láni hjá hinum íslensku bönkunum en Glitni. FL Group hafi hins vegar ekki átt neinn hlut í þeim bönkum. Þeir hafi viljað lána félaginu vegna þess að FL Group var talinn vera ábyrgur lántakandi.
Lárus segir, að í stefnunni sé vitnað ýtarlega til tölvupósta frá Jóni Ásgeiri Jóhannessyni til hans.
„Samskipti viðskiptavina og hluthafa við bankann voru oftast óformleg og ég fékk marga tölvupósta. (...) Jón Ásgeir hagaði sér eins og við má búast af manni, sem notar mikið tölvupóst og sem var óánægður með að aðili, sem hann átti í viðskiptum við, gerði ekki það sem hann vildi. Þegar ég starfaði hjá bankanum áttu ýmiskonar áköf samskipti sér stað með tölvupósti, á fundum eða í síma. Það breytir ekki því, að ég bar ábyrgðina sem forstjóri," segir Lárus.
Hann gagnrýnir einnig í yfirlýsingunni, að í stefnu Glitnis sé honum lýst sem óreyndum þegar hann kom til starfa hjá bankanum í apríl 2007. Hann hafi öðlast umtalsverða reynslu í starfi fyrir Landsbankann og gengið vel í starfi. Þá hafi hann verið á svipuðum aldri og fyrri forstjóri Glitnis þegar hann var ráðinn til starfa.



















