Viðurkenna ólöglegt samráð

Fyrirtækið Skipti og dótturfélag þess, Tæknivörur, hafa viðurkennt fyrir Samkeppniseftirlitinu, að Tæknivörur hafi brotið samkeppnislög með umfangsmiklu ólögmætu samráði við Hátækni. Fallast fyrirtækin á að greiða 400 milljónir króna í stjórnvaldssekt vegna brotanna.

Samkeppniseftirlitið gerði í apríl húsleit hjá Skiptum og dótturfélögum þess, Símanum og Tæknivörum. Á grundvelli gagna sem fundust í þeirri leit var gerð leit hjá Hátækni og móðurfélagi þess, Olíuverslun Íslands, þann 7. maí sl. Var þetta gert sökum gruns um ólögmætt samráð milli Hátækni og Tæknivara á heildsölumarkaði fyrir sölu á farsímum.

Tæknivörur og Hátækni eru helstu keppinautarnir í innflutningi og heildsölu á farsímum og tengdum búnaði. Hátækni er umboðsaðili fyrir m.a. Nokia síma og Tæknivörur fyrir m.a. Sony Ericsson síma.

Sátt við Skiptasamsteypuna

Í kjölfar húsleitanna snéru Skipti og Tæknivörur sér til Samkeppniseftirlitsins og óskuðu með vísan til samkeppnislaga eftir því að veita liðsinni við að upplýsa málið. Á þeim grundvelli hefur Samkeppniseftirlitið nýtt heimild samkeppnislaga og gert sátt við Skiptasamstæðunna. Sáttin felur í sér eftirfarandi:

  • Skipti og dótturfélög hafa afhent gögn og upplýst um málsatvik.
  • Viðurkennt er að Tæknivörur hafi brotið gegn 10. gr. samkeppnislaga með umfangsmiklu ólögmætu samráði við Hátækni.
  • Fallist er á að greiða 400 milljónir kr. í stjórnvaldssekt vegna brotanna.
  • Skipti fallast á að selja allan eignarhlut sinn í Tæknivörum.
  • Síminn skuldbindur sig til að grípa ekki til aðgerða sem raskað geta samkeppni á markaði fyrir farsíma.

Samkeppniseftirlitið segir, að þessi sátt auðveldi rannsókn stofnunarinnar og hafi í för með sér að breyting verði á markaðnum  fyrr en ella og jákvæð áhrif fyrir samkeppni og neytendur. Mun Samkeppniseftirlitið ekki kæra stjórnendur hjá Skiptasamstæðunni til lögreglu og segir málinu lokið gagnvart fyrirtækjum innan Skiptasamstæðunnar. Þáttur Hátækni og eftir atvikum Olíuverslunar Íslands sé enn til rannsóknar.

Önnur mál Símans til rannsóknar

Samkeppniseftirlitið segir, að húsleitirnar hafi einnig verið liður í rannsókn á ætluðum brotum m.a. Símans á banni samkeppnislaga við misnotkun á markaðsráðandi stöðu. Það mál er enn til rannsóknar hjá Samkeppniseftirlitinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK