Innistæðutrygging hækkuð?

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins vill hækka innistæðutrygginguna.
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins vill hækka innistæðutrygginguna. Reuters

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins lagði til í dag, að upphæð innistæðutryggingar sparifjáreigenda verði tvöfölduð og hækki í 100 þúsund evrur, jafnvirði 15,8 miljóna króna, fyrir hvern reikning. Þessi upphæð greiðist út 7 dögum eftir að banki verður ógjaldfær.

Hámarksbætur samkvæmt reglum Evrópusambandsins voru 20.886 evrur og við þá upphæð hefur verið miðað í deilu Íslendinga við Breta og Hollendinga um Icesave-reikningana. Ákveðið var hins vegar að hækka þessa fjárhæð í 50 þúsund evrur í kjölfar fjármálakreppunnar og gildir sú upphæð frá og með júní sl. Verði tryggingin hækkuð  í 100 þúsund evrur mun hún ná yfir 95% af öllum innistæðum á bankareikningum.

Þá leggur framkvæmdastjórnin til að bætur til fjárfesta hækki í allt að 50 þúsund evrur úr 20 þúsund evrur ef eignir þeirra rýrna vegna fjársvika. Er þeirri tillögu ætlað að vernda fjárfesta fyrir fjársvikum á borð við þau, sem bandaríski kaupsýslumaðurinn Bernard Madoff stundaði þegar hann sveit þúsundir milljarða dala út úr viðskiptavinum sínum.

Michel Barnier, sem fer með málefni innri markaðarins í framkvæmdastjórn ESB, segir að þessum tillögum sé ætlað að auka gegnsæi og ábyrgð í evrópska fjármálakerfisins. 

„Evrópskir neytendur eiga betra skilið," sagði hann við blaðamenn. „Þeir eiga að geta treyst því, að sparnaður þeirra, fjárfestingar og tryggingar njóti verndar hvar sem þær eru í Evrópu.

Tillögur Barniers taka ekki gildi fyrr en Evrópuþingið og aðildarríki Evrópusambandsins hafa lagt blessun sína yfir þær.  Í tillögunum felst m.a., að  bæturnar verða greiddar út án tillits til þess hvar bankareikningurinn er. Það þýðir, að íbúi í Portúgal, sem á fé á sænskum bankareikningi, fengi bætur úr portúgalska innlánstryggingasjóðnum, sem síðan myndi innheimta bæturnar hjá sænska tryggingasjóðnum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK