Viðskipti
| mbl
| 12.7.2010
| 16:28
S&P staðfestir einkunn Bretlands
Alþjóðlega matsfyrirtækið Standard & Poor's staðfesti í dag lánshæfiseinkunn breska ríkisins og verður hún áfram AAA en með neikvæðum horfum. Hrósar S&P breskum stjórnvöldum fyrir að taka ríkissjóðshallann föstum tökum.
„Við staðfestum AAA einkunn Bretlands fyrir langtímaskuldbindingar en það endurspeglar að okkar mati fjölbreytt og auðugt efnahagslíf, nægan sveigjanleika í peninga- og ríkisfjármálum og sveigjanlegan vinnumarkað," segir S&P í yfirlýsingu.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















