Fær ekki kröfuna greidda
Bjarni Ólafsson bjarni@mbl.is
Einn birgja Lystar ehf., sem rak til skamms tíma skyndibitakeðjuna Metro og þar áður McDonalds, Ottó Sverrisson, segir að Lyst skuldi sér 4,4 milljónir króna og að eigandi Lystar, Jón Garðar Ögmundsson, hafi sagt að hann ætli ekki að greiða þá skuld.
„Hann sagði þetta í vitna viðurvist og sagði að hann ætlaði ekki að borga, meðal annars vegna þess að ég hafði sett skuldina í innheimtu,“ segir Ottó, sem á heildsöluna Servida.
Ottó segir að viðskiptasamband sitt við Lyst hafi byrjað þegar búið var að skipta um nafn yfir í Metro. „Fyrst komu þeir til mín og gerðu tvær litlar pantanir, sem þeir greiddu fyrir með peningum. Svo var gerð ein stór pöntun og áður en að greiðslu kom fyrir hana gerðu þeir aðra stóra pöntun. Ég hef ekki ennþá fengið greitt fyrir þær, en þær voru báðar gerðar fyrir áramót. Ég rek mitt fyrirtæki þannig að ég er í persónulegri ábyrgð fyrir skuldbindingar þess og þetta er því ekkert grín. Fyrirtækið er sem betur fer ekki mikið skuldsett, þannig að ég mun harka þetta af mér, en það er djöfullegt að þurfa að afskrifa þetta fé.“
Eins og áður hefur komið fram hefur fyrirtækið Líf og heilsa keypt rekstur Metro af Lyst ehf. Eigandi Lífs og heilsu er Ásgerður Guðmundsdóttir og sagði Jón Garðar við blaðamann Morgunblaðsins fyrir helgi að ekkert samband væri á milli hans og Ásgerðar. Hann sagði hins vegar við Morgunblaðið í gær að þau væru góðir vinir og hefðu verið lengi, en að engin fjárhagsleg tengsl væru þeirra í millum.
Skuldir Lystar voru í árslok 2008 ríflega 200 milljónir króna og jukust eftir því sem á leið. Hann sagði í samtali við Morgunblaðið að kaupverðið nú væri trúnaðarmál, en hlypi á nokkrum tugum milljóna króna. Hann sagði jafnframt að eignir þrotabúsins dygðu ekki upp í skuldir þess, en að hann væri í persónulegum ábyrgðum fyrir mörgum skuldbindinganna og að næsta verkefni væri að reyna að reyna að greiða úr málum fyrirtækisins.



















