Gaumur ekki skilað ársreikningi síðan 2007
Hagar, sem reka m.a. Hagkaup og Bónus, var langstærsta eign Gaums þar sem Kaupþing tók hlutinn yfir. Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Þórður Gunnarsson thg@mbl.is
Fjárfestingafélagið Gaumur, sem er í eigu systkinanna Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og Kristínar Jóhannesdóttur, auk foreldra þeirra, Jóhannesar Jónssonar og Ásu Karenar Ásgeirsdóttur, er einskis virði samkvæmt eignayfirliti sem Jón Ásgeir skilaði til breskra dómstóla fyrir skömmu.
Langstærsta eign Gaums var 75% eignarhlutur í Baugi. Jafnframt átti félagið 90% hlut í Stoðum Invest, en eignasafn þess félags hefur þurrkast út. Samkvæmt ársreikningi fyrir árið 2007, sem er nýjasti birti ársreikningur Gaums, námu skuldir félagsins um 16 milljörðum króna. Á þessu ári eru 10 milljarðar króna á gjalddaga, en vandséð er hvernig félagið á að standa skil á þeirri afborgun, enda litlar sem engar eignir eftir í því. Strax í upphafi árs 2009, þegar endalok Baugs Group nálguðust, voru uppi spurningar um afdrif Gaums. Meira en ár er liðið frá því að Baugur var tekinn til gjaldþrotaskipta, en Gaumur lifir þó enn.
Jón Ásgeir Jóhannesson var raunar spurður um stöðu Gaums í september 2009. Á þeim tíma sagði hann stöðuna ágæta, svo fremi sem helsta eignin, Hagar, skilaði góðri afkomu. Fáum vikum síðar tók Arionbanki yfir 1998 ehf., dótturfélag Gaums sem keypti Haga af Baugi sumarið 2008. En eins og fram hefur komið krefst þrotabú Baugs 15 milljarða frá Gaumi vegna sölunnar á Högum, en söluandvirðið var notað til þess að kaupa hlutabréf í Baugi af stærstu hluthöfum Baugs.



















