Viðskipti
| mbl
| 15.7.2010
| 17:17
Enn tafir á framleiðslu Dreamliner
Bandaríski flugvélaframleiðandinn Boeing sagði í dag, að afhending fyrstu Boeing 787 Dreamliner flugvélanna kunni að tefjast fram á næsta ár. Samkvæmt síðustu áætlun átti að afhenda vélarnar í lok þessa árs.
Miklar tafir hafa orðið á framleiðslu vélarinnar, sem var reynsluflogið í fyrsta skipti í desember. Upphaflega stóð til að afhenda fyrstu vélarnar til nýrra eigenda á árinu 2008.
55 flugfélög, þar á meðal Icelandair, hafa pantað samtals 840 flugvélar af þessari tegund. Um er að ræða fyrstu farþegaflugvél Boeing í 15 ár, sem hönnuð er frá grunni. Hún er að stórum hluta smíðuð úr koltrefjaefnum og er sögð mun sparneytnari en sambærilegar flugvélar.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin




















