Viðskipti
| mbl
| 23.7.2010
| 16:54
| Uppfært
17:11
Hagnaður hjá Nýherja
Hagnaður á rekstri Nýherja nam 100 milljónum króna á fyrri árshelmingi en á sama tímabili í fyrra var 71 milljónar króna tap á rekstrinum.
Fram kemur í tilkynningu, að vörusala innanlands í öðrum ársfjórðungi hafi verið 30% meiri en í sama ársfjórðungi í fyrra. Þá hafi náðst hafnvægi í rekstri erlendra dótturfélaga og séu horfur góðar á síðari árshelmingi.
Þá er áformað að samningar við viðskiptabanka félagsins um fjárhagslega endurskipulagningu liggi fyrir á næstunni. Þórður Sverrisson, forstjóri, segir að Nýherji sé langt kominn í viðræðum við bankana um endurskiplagningu á fjárhag samstæðunnar og sé gert ráð fyrir að niðurstöður liggi fyrir á næstunni.|
|
Tilkynning Nýherja |
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















