Þrotabú græðir á tískunni
Frá stærstu tískusýningu sem haldin hafði verið hérlendis en hún fór fram í Skautahöllinni fyrir nokkrum árum. Sýningin var á vegum nýstofnaðs félags, Mosaic Fashions, og voru föt frá Oasis, Coast, Whistles og Karen Millen á sýningarpöllunum auk undirfata frá Odille Oasis. Árni Torfason
Tískuverslanirnar Oasis, Karen Millen, Coast og Warehouse, keðjur sem allar heyrðu undir Baugsveldið á sínum tíma, skila nýjum eigendum sínum í þrotabúi Kaupthings nú ágætum hagnaði.
Fjallað er um málið á vef breska blaðsins Guardian en þar segir að Aurora Fashions, félag í eigu þrotabúsins, hafi tekið yfir reksturinn af Mosaic Fashions í marsmánuði 2009.
Haft er eftir Derek Lovelock, stjórnarformanni Aurora Fashions, að tekist hafi að rétta við reksturinn sem sé nú á réttri braut.
Þannig væri vöxturinn á erlendum mörkuðum góður sem og í veltu í netverslun keðjanna.
Velta keðjanna á fyrstu 11 mánuðunum frá því Mosaic Fashions missti yfirráð yfir þeim nam 661 milljón punda, eða hátt í 125 milljörðum króna.
Hagnaður af reglulegri starfsemi var 22,6 milljónir punda, um 4,26 milljarðar króna, auk þess sem nýjum eigendum tókst að greiða niður skuldir félagsins hraðar en ráð var fyrir gert, að því er segir í fréttinni.
Standa þær nú í 109 milljónum punda, eða í um 20,5 milljörðum króna, en alls heyra 605 verslanir undir keðjurnar fjórar. Nema skuldirnar því um 34 milljónum króna á verslun, sé á annað borð hægt að notast við þann mælikvarða.



















