Viðskipti
| mbl
| 27.7.2010
| 7:15
UBS skilar hagnaði
Hagnaður svissneska bankans UBS nam 2 milljörðum svissneskra franka, jafnvirði 233 milljörðum króna, á öðrum fjórðungi ársins en á sama tímabili í fyrra tapaði bankinn 1,4 milljörðum franka.
Afkoman var mun betri en sérfræðingar gerðu ráð fyrir en þeir höfðu spáð 1,1 milljarðs franka hagnaði. Hefur bankinn nú skilað hagnaði þrjá ársfjórðunga í röð.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















